Sumarmarkaður Lionsklúbbsins Ylfu haldinn í tíunda sinn

Sumarmarkaður Lionsklúbbsins Ylfu verður nú haldinn í tíunda sinn. Í tilkynningu frá klúbbnum kemur fram að Ylfa hafi verið svo heppin að hafa fengið afnot af Aðalstræti 6, einu af elstu húsum bæjarins. Markaðurinn verður haldinn milli klukkan 13:00-17:00 á morgun þann 29.ágúst. Á markaðnum kennir ýmissa grasa og verða til sölu skrautmunir, skartgripir, fatnaður, leikföng og svo mætti lengi telja.
„Hvert ár er vonast eftir þurru veðri því markaðurinn er í bakgarði hússins. Þar hefur oft myndast skemmtileg og róleg stemming því það er eins og allir sem koma fari í hæglætisgírinn um leið og komið er. Innandyra er svo kökubazar. Margir koma ár eftir ár og leita eftir „tertunni“ sinni. Aðal aðdráttaraflið eru glæsilegar marengstertur,“ segir um viðburðinn.
Allur efniskostnaður er borgaður af Ylfunum þannig að allur ágóði sölunnar fer óskertur í verkefnasjóð klúbbsins. Í ár verður engin breyting á og vonast Ylfusystur eftir að sem flestir sjái sér fært að líta við og styðja við verkefni klúbbsins. Aðalverkefni er aðstoð við börn og ungmenni á Akureyri og nágrenni.
Hlekkur á Facebookviðburð klúbbsins.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










