Sumar og bjórhátíð LYST um helgina

Sumar & bjórhátíð LYST 2026 fer fram helgina 17.–19. júlí í Lystigarðinum á Akureyri.
Á föstudegi og sunnudegi verða happy hour tilboð á bestu börum Akureyrar fyrir armbandshafa, ásamt matartilboðum á völdum veitingastöðum um bæinn.
Laugardaginn 18. júlí klukkan 13:00–18:00 taka bestu brugghús landsins yfir LYST með opnum dælum, bjórsmakki, veitingasöla í garðinum, Hyalin pop-up búð og lifandi tónlist yfir daginn. Þar verður hægt að smakka fjölbreytt úrval bjóra frá frábærum brugghúsum í léttri sumarstemningu.
Um kvöldið taka við útitónleikar LYST þar sem Daði Freyr stígur á svið ásamt Sturla Atlas. Eftir tónleikana heldur stemningin áfram á Leyni með Sturla Atlas.
Armband á hátíðina gildir í bjórsmakk milli klukkan13:00–18:00 á laugardegi og sem miði á útitónleikana með Daða Frey ásamt því að veita afslætti um allan bæ yfir helgina.
„Þetta verður helgi full af bjór, mat, tónlist og góðri stemningu um allan bæ — með LYST í Lystigarðinum sem aðalmiðju hátíðarinnar,“ segir í tilkynningu fyrir viðburðinn.
Verð:
Armband: 12.900 kr.
Bjórkort, 5 bjórar: 6.000 kr. (bara selt 18. júlí)
Bjórtóken, 1 bjór: 1.500 kr. (bara selt 18. júlí)
Útitónleikar forsala: 5.900 kr.

Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










