Styrktartónleikar fyrir Úlfar

Á morgun, þriðjudaginn 24. mars, klukkan 20:00 verða haldnir styrktartónleikar í Samkomuhúsinu á Akureyri fyrir Úlfar Baldvin Kjartansson sem er 6 ára drengur frá Dalvík sem greindist nýlega með heilaæxli og er nú í Svíþjóð í meðferð.  Allur ágóði rennur til Úlfars.

Úlfar Baldvin Kjartansson er 6 ára Dalvíkingur. Mamma hans Nanna Hinriksdóttir er sjálfstætt starfandi förðunar og naglafræðingur og hefur unnið fyrir Leikfélag Akureyrar og pabbi hans Kjartan Hjaltason vinnur fyrir Samherja.  Úlfar á 8 ára gamla systur sem heitir Melkorka Máney Kjartansdóttir. Úlfar greindist með óskurðtækt æxli í heilastofni í febrúar og er nú í Svíþjóð í geisla og lyfjameðferð. 

Vinir fjölskyldunnar hafa ákveðið að halda stutta styrktartónleika í Samkomuhúsinu 24 mars klukkan 20:00

Fram koma Andrea Gylfa, Arnþór Þórsteinsson, Ágúst Brynjars, Drottningar, Hjalti Rúnar, Magni Ásgeirs, Sólveig Guðmunds, Svavar Knútur, Tinna Óðins, Urður Bergsdóttir og Villi Braga.

Hægt er að panta miða með því að senda tölvupóst á netfangið u.b.best@gmail.com en einnig er hægt að kaupa miða við hurð á meðan pláss leyfir. Vert er að taka fram að enginn posi er á staðnum en hægt verður að greiða með peningum við hurð eða leggja inn á reikning sem stofnaður var fyrir tónleikana.

Ef fólk vill styrkja fjölskylduna og kemst ekki á tónleikana þá er reikningur hér sem fjölskylda og vinir stofnuðu til að létta undir hjá þeim. 

Reikningsupplýsingar fyrir styrktarreikninginn eru

Rn 0123-15-247041
kt 250590-2109

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!