Stuttmynd Samúels sýnd í Danmörku

Íslenska stuttmyndin Submit, eftir kvikmyndagerðarmanninn Samúel Lúkas, verður sýnd í alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni OFF – Odense International Film Festival í Óðinsvéum í Danmörku dagana 24. til 30. ágúst.
OFF var stofnuð árið 1975 og er elsta og virtasta stuttmyndahátíð Danmerkur og . Myndir sem hljóta helstu verðlaun hátíðarinnar eiga möguleika á þátttöku á Óskars-, BAFTA- og Evrópsku kvikmyndaverðlaununum.
Alls bárust yfir 4000 stuttmyndir til OFF í ár en aðeins 164 myndir voru valdar í keppnisprógram hátíðarinnar. 50 myndir eru í flokknum alþjóðlegar stuttmyndir sem Submit keppir í. Submit er eina framlag Íslands í ár. Rúnar Rúnarsson og Hjördís Jóhannsdóttir kepptu árin 2025 og 2024. Hreiður eftir Hlynur Pálmason keppti í danska flokknum árið 2022 og vann.
Kvikmyndahátíðir eru einmitt sögusvið Submit. Alex, óöruggur kvikmyndagerðarmaður er leiddur á siðferðislega flókna braut af dagskrárstjóra virtrar kvikmyndahátíðar. Myndin er sálfræði drama með dass af svörtum húmor og fjallar um metnað, samkeppni, óöryggi og valdaójafnvægi. Hún veltir fyrir sér hvað gerist þegar löngunin eftir viðurkenningu verður sterkari en eigin siðferðismörk. Hver er fórnarkostnaður velgengni?
Með helstu hlutverk fara Jökull Smári Jakobsson, Svandís Dóra Einarsdóttir, Hrafnhildur Ingadóttir og Mikael Kaaber. Framleiðendur myndarinnar eru Kristín Ósk Sævarsdóttir og Lea Ævarsdóttir.
Samúel skrifaði og leikstýrði Submit sem var útskriftarverkefni hans 2025 í fyrsta útskriftarárgangi kvikmyndalistadeildar Listaháskóla Íslands. Submit var ein af sex tilnefndum verkum í leiknum stuttmyndaflokki Stockfish kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík í mars síðastliðinn.
Akureyrarbær veitti Samúel ferðastyrk til Danmerkur.
TRAILER: https://www.instagram.com/reel/DUxrc8YgMJe/?utm_source=ig_web_copy_link&igsi=MzRlODBiNWFlZA==
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










