Strandmenningarhátíð á Siglufirði
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Strandmenningarhátíðin „Auður hafs og stranda“ verður haldin á Siglufirði dagana 27.–30. ágúst 2026. Hátíðinni er stýrt af Vitafélaginu og býður hún upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna, tengda sjómennsku, sögu og strandmenningu.
Bæjarráð Fjallabyggðar samþykkti nýverið að veita Vitafélaginu 200 þúsund króna styrk vegna hátíðarinnar.
Ekki er komin endaleg dagskrá fyrir hátíðina samkvæmt tilkynningu verður í boði bátasmíði, handverk, myndlist, ljóðlist, tónlist, kvikmyndir, matur og fleira.

Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










