MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Strætó frá Akureyri til Dalvíkur

Eftir Ingólfur Stefánsson·
grimsey-3-1
kaffid.is

Frá 1. október verður hægt að taka strætó frá Akureyri til Dalvíkur og ná þaðan ferjunni Sæfara til Grímseyjar. Brottför ferjunnar frá Dalvík hefur verið færð til kl. 9.15 og er breytingunni ætlað að auðvelda farþegum að nýta almenningssamgöngur á leiðinni til Grímseyjar. Áður var þessi tenging ekki möguleg. Greint er frá á vef Akureyrarbæjar.

Brottför frá Grímsey verður seinkað samhliða breytingunni. Ekki verður boðið upp á strætótengingu frá Dalvík til Akureyrar í tengslum við komu ferjunnar frá Grímsey.

Vegagerðin hefur jafnframt gert breytingar á vetraráætlun Sæfara og verður ferðum fækkað um eina yfir vetrartímann. Í september verða fjórar ferðir í boði, á mánudögum, miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum. Frá 1. október til 14. maí verða þrjár ferðir á viku, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum.

Flogið er til Grímseyjar þrisvar í viku yfir veturinn, á sunnudögum, þriðjudögum og föstudögum.

Nánari upplýsingar um ferjusiglingar, strætó og flug má finna á ferjur.is, straeto.is og Norlandair.

Tengdar greinar

Uppfært: 8. september 2026