Strætó að Hríseyjarferjunni

Nú er hægt að ferðast með almenningssamgöngum frá Akureyri og áfram til Hríseyjar með tengingu milli strætóleiðar 78 og Hríseyjarferjunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar í dag þar sem segir að þetta muni auðvelda íbúum og gestum að komast til og frá eyjunni án þess að vera á eigin bíl.
Sem stendur eru þrjár ferðir á dag, mánudaga til föstudaga, og ein ferð á sunnudögum. Tengingarnar henta vel fyrir ferðamenn sem vilja heimsækja Hrísey og njóta þess sem eyjan hefur upp á að bjóða.
„Hrísey er einstakur áfangastaður með fallegri náttúru, fjölbreyttu fuglalífi og rólegu andrúmslofti. Það er vel þess virði að kíkja í heimsókn og njóta eyjunnar. Unnið er að frekari útfærslum á tengingum almenningssamgangna með það að markmiði að þær nýtist íbúum Hríseyjar enn betur,“ segir í tilkynningu bæjarins.

Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










