MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Stórkostlegur árangur DSA á Dance World Cup í Dublin

Eftir María Hjelm·
IMG_5677
kaffid.is

DSA Listdansskóli Akureyrar skilaði glæsilegum árangri á Dance World Cup 2026 sem fram fór dagana 8.–18. júlí í Dublin á Írlandi. Af 12 atriðum sem skólinn sendi til keppni komust 10 í topp 10 í sínum flokkum og öll hópatriði DSA röðuðu sér meðal tíu efstu.

Dance World Cup er eitt stærsta og virtasta alþjóðlega dansmót heims þar sem þúsundir ungra dansara frá tugum landa etja kappi. Í flestum flokkum eru um 20–35 atriði sem keppa til úrslita, sem gerir árangur DSA enn eftirtektarverðari.

Besti árangur DSA náðist í flokknum Children Small Group Song and Dance, þar sem DSA hafnaði í 4. sæti með 92,2 stig. Aðeins 0,1 stig skildu að þriðja og fjórða sætið.

Skólinn tryggði sér einnig 6. sæti í flokkunum Children Small Group Contemporary og Junior Large Group Commercial. Önnur hópatriði DSA enduðu í 7., 8., 9. og 10. sæti, sem undirstrikar breiddina og styrkinn í starfi skólans.

Íslenskur þjóðdans á heimsvettvangi

Í fyrsta sinn í sögu Dance World Cup átti Ísland þátttakendur í flokknum National and Folklore, þar sem keppt er í þjóðdönsum. Það var lið DSA sem sendi það atriði og hafnaði það í 9. sæti með 86,5 stig, sem markar merkilegan áfanga fyrir íslenskan dans á alþjóðlegum vettvangi.

Í keppnisliði DSA voru 33 nemendur á aldrinum 7–17 ára, sem hafa lagt hart að sér undanfarna mánuði við undirbúning mótsins.

„Við erum ótrúlega stolt af þessum árangri. Nemendurnir sýndu einstaka vinnusemi, samheldni og fagmennsku við allan undirbúning og það sama má segja um fjölskyldurnar sem fylgdu keppendum á mótið og lögðu mikla vinnu í allan undirbúning líkt og við saum á búningum, fjáröflun og fleira svo ekki sé talað um að vera öflug í að hvetja keppendur áfram í salnum. Við erum gríðarlega stolt af okkar fólki og íslenska liðinu öllu og erum þegar farin að huga að næsta Dance World Cup,“ segir Katrín Mist Haraldsdóttir, eigandi DSA.

Að baki keppnisliðsins standa Katrín Mist Haraldsdóttir, eigandi DSA, og Eydís Gauja Eiríksdóttir, skólastjóri DSA. Þær eru jafnframt höfundar allra keppnisatriðanna sem skólinn flutti á mótinu.

Árangurinn í Dublin er enn einn áfanginn í öflugu starfi DSA Listdansskóla Akureyrar og staðfestir að markviss uppbygging, metnaðarfull kennsla og öflugir nemendur geta skilað árangri á allra stærsta sviði í alþjóðlegum dansheimi.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026