MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Stór hagsmunamál til umræðu á Haustþingi SSNE

Eftir Ingólfur Stefánsson·
haustthing_ssne
Ljósmynd: SSNE/Örlygur Hnefill· kaffid.is

Haustþing Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, SSNE, fór fram í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík í vikunni. Fjölmörg stór hagsmunamál landshlutans voru á dagskrá, meðal annars samgöngur og öryggisinnviðir, orkumál, fjarskipti, ferðaþjónusta, menntun og heilbrigðisþjónusta. Ítarlega er fjallað um haustþingið á vef SSNE hér.

Heimir Örn Árnason, formaður SSNE, setti þingið og sagði í opnunarávarpi sínu miklu skipta fyrir sveitarfélögin að eiga sameiginlegan farveg þar sem ólíkar raddir heyrast.

„Norðurland eystra hefur sterkar byggðir, öflugt atvinnulíf, fjölbreytta náttúru og mikilvæga innviði og við verðum að standa saman um lykilmál sem snúa að grunnstoðum samfélaganna, slík mál varða ekki eitt heldur öll sveitarfélögin,“ sagði Heimir.

Fjölmargar ályktanir voru lagðar fyrir þingið, meðal annars um áframhaldandi uppbyggingu Akureyrarflugvallar sem mikilvægs samgöngu- og öryggisinnviðar og stuðning við aukna starfsemi Landhelgisgæslunnar á Akureyri, þar á meðal með staðsetningu á einni af þremur þyrlum Landhelgisgæslunnar á Akureyrarflugvelli.

Nánar á vef SSNE.

Tengdar greinar

Uppfært: 12. september 2026