Ökumaður var stöðvaður á 170 km hraða á hringveginum, á Svalbarðsströnd, skömmu eftir miðnætti í nótt. Morgunblaðið greinir frá. Ökumaðurinn verður sviptur ökuréttindum í þrjá mánuði, fær þrjá punkta fyrir brot á umferðarlögum og gert að greiða 250 þúsund krónur í sekt.
Lögreglan á Norðurlandi eystra stöðvaði einnig annan ökumann á sömu slóðum á 122 km hraða.
UMMÆLI