Gæludýr.is

Stöðva þarf kæfisvefnsrannsóknir á SAk tímabundið

Stöðva þarf kæfisvefnsrannsóknir á SAk tímabundið

Kæfisvefnsrannsóknum hefur fjölgað mikið síðastliðin ár og nú er svo komið að gildandi samningur við Sjúkratryggingar Íslands um fjölda rannsókna nægir ekki til að anna eftirspurn eftir þjónustunni. Í ljósi þessa verða ekki gerðar fleiri kæfisvefnsrannsóknir á árinu nema samningar náist við Sjúkratryggingar Íslands um framkvæmd fleiri slíkra rannsókna á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Sjá einnig: Rannsókn á algengi svefnvandamála barna – Gagnasöfnun gengið vonum framar

„SAk er í samningaviðræðum við SÍ og er það von okkar að samningar náist um fjölgun rannsókna á árinu,“ segir í tilkynningu á vef Sjúkrahússins á Akureyri.

Sambíó

UMMÆLI