Stefna á að fjárfesta í mjúkbotna slöngubát

Björgunarsveitin Súlur á Akureyri stefnir á að fjárfesta í mjúkbotna slöngubáti sem mun nýtast vel sem viðbragð í sjónum og ánni sem umlykja að miklu leiti flugbrautina á Akureyrarflugvelli. Björgunarsveitin fékk fyrr í sumar styrk úr Styrktarsjóði Isavia og Slysavarnarfélags Landsbjargar sem mun nýtast í bátakaupin.
Báturinn mun vera mikilvægt tæki í viðbragði ef upp koma atvik tengd flugvellinum. Báturinn er valinn sérstaklega með það í huga, ekki of langur og með stuttan mótorhæl. Jafnframt mun báturinn gegna mikilvægu hlutverki í þjálfunarferli björgunarsveitarfólks á önnur meira krefjandi vatnatæki sveitarinnar, sem einnig gegni lykilhlutverki komi til útkalls á pollinum eða á ánni. Þá er bátur af þessari stærð mjög þægilegur í flutningi og mun því geta veitt hratt viðbragð í sjó, ám og vötnum á nærliggjandi svæðum.
Á þessu ári var alls 10 milljónum króna úthlutað úr Styrktarsjóði Isavia og Slysavarnarfélags Landsbjargar til 14 verkefna hjá björgunarsveitum víðs vegar um landið. Meðalstyrkur nam um 714 þúsund krónum og hæstu styrkirnir voru 1 milljón króna.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










