NTC

Stefanía ráðin prestur í Ólafsfjarðarprestakalli

Stefanía ráðin prestur í Ólafsfjarðarprestakalli

Séra Stefanía G. Steinsdóttir hefur verið ráðin prestur í Ólafsfjarðarprestakalli í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi. Stefanía var sú eina sem sótti um stöðuna en umsóknarfrestur var til miðnættis 16. mars síðastliðinn.

Stefanía hóf fyrst störf fyrir Ólafsfjarðarprestakall í september á síðasta ári þegar hún var ráðin í afleysingu.

Stefanía er fædd og uppalin á Akureyri. Hún varð stúdent frá Verkmenntaskólanum á Akureyri árið 2001. Hún tók BS gráðu í líftækni og hóf þá masters nám í auðlindafræði í Háskólanum á Akureyri. Hún lauk BA gráðu í guðfræði árið 2015 og mag. theol. prófi frá Háskóla Íslands í júní árið 2017.

Stefanía var æskulýðsleiðtogi í Neskirkju árin 2015-2017 áður en hún vígðist til prestsþjónustu í Glerárprestakalli í ágúst árið 2017. Þá hefur hún verið í afleysingu í Akureyrarkirkju og nú síðast í Ólafsfjarðarkirkju.

Stefanía er í sambúð með Sólveigu Helgadóttur markþjálfa og eru börn Stefaníu fjögur Guðrún Linda, Hákon Valur, Andrea og Dagur Valur.

Nánar á vef Þjóðkirkjunnar.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó