Stefán Þór með magnaða ábreiðu af lagi Maroon 5

Stefán Þór er magnaður kappi

Dalvíkingnum Stefáni Þór Friðrikssyni er ýmislegt til lista lagt en hann hefur getið sér gott orð sem trúbador að undanförnu. Stefán heldur úti Facebook síðu þar sem hann leikur sér með gítarinn en í dag sendi hann frá sér frábæra ábreiðu.

Stefán setti myndband á Facebook síðu sína þar sem hann syngur lagið Sunday Morning sem hljómsveitin Maroon 5 gaf út upphaflega. Við mælum með að hlusta á þessa fallegu ábreiðu í spilaranum hér að neðan.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!