Stefán Elí – „Ég og frúin spiluðum nýlega á hátíðinni High Vibe Festival í Kaliforníu“

Stefán Elí er 26 ára Akureyringur. Pabbi hans er Haukur Pálmason og vinnur í Tónlistarskólanum á Akureyri, ásamt því að vera tónlistarmaður og hljóðmaður. Afi hans var Pálmi Stefánsson, sem stofnaði Tónabúðina á Akureyri. Tónlistarhæfileikar Stefáns Elís virðast þannig hafa erfst í karllegg.
En tónlistin er ekki það eina sem Stefán Elí fæst við. Síðustu misseri hefur hann meðal annars ferðast um heiminn, sinnt markþjálfun og viðburðahaldi, unnið við tónlistarframleiðslu og listsköpun, komið fram á tónlistarhátíðum og rekið sitt eigið fyrirtæki.
Síðastliðið eitt og hálft ár ferðaðist Stefán Elí víða um heiminn með áströlsku kærustunni sinni, Esha Fae. Á ferðalaginu lögðu þau leið sína til Gvatemala, Kanada, Bandaríkjanna, Perú, Mexíkó og Kosta Ríka.

„Á ferðalögunum hef ég komið fram á ýmsum tónlistarhátíðum ásamt því að halda fjölmarga viðburði. Ég og frúin spiluðum nýlega á hátíðinni High Vibe Festival í Kaliforníu núna í júní og héldum einnig tónleika í Toronto í byrjun júlí. Við komum fram á Solstice Festival í Gvatemala í lok síðasta árs og spiluðum einnig í Perú,“ segir Stefán Elí og bætir við: „Í febrúar héldum við líka viðburð í Gvatemala og það er gaman að segja frá því að nokkrar manneskjur frá Íslandi komu. Við kynntumst hefðum Maya fólksins, iðkuðum yoga, spiluðum tónlist og nutum dásamlegrar náttúru.“
Stefán Elí starfar við fjölbreytta listsköpun og vinnur bæði staðbundið og á netinu
„Tónlistarfólk frá hinum ýmsu heimshornum leitar til mín og ég aðstoða það við tónlistarframleiðslu, upptökur og hljóðblöndun. Ég starfa einnig sem myndlistarmaður og hef unnið fjölmörg persónuleg málverk fyrir fólk á Íslandi. Ýmsir aðilar leita til mín og panta sérstaklega málverk og ég held einnig myndlistarsýningar reglulega þar sem ég sýni og sel málverk sem eru oft innblásin af náttúru, dýrum og fornri visku. Fólk getur haft samband við mig persónulega til að panta verk eða spyrjast fyrir um þau verk sem ég á.“
Sacred Swag í samstarfi við vefnaðarkonur í Andesfjöllunum
„Ég og frúin rekum fatafyrirtæki sem ber nafnið Sacred Swag. Við hönnun okkar eigin föt með okkar myndlist og málverkum ásamt því að bjóða upp á einstök klæði og varning frá Perú og Gvatemala. Við vinnum í samstarfi við konur uppi í Andesfjöllunum sem vefa og sauma ýmist úr alpaca eða kindaull. Hægt er að nálgast fötin á vefversluninni okkar sacredswag.co en við setjum einnig reglulega upp markaði á viðburðunum okkar og erum með rými á Akureyri þar sem fólk getur komið og verslað hjá okkur beint.“

Kominn heim og nóg um að vera
„Við héldum nýlega viðburð í Minjasafnskirkjunni sem samanstóð af tónleikum, myndlistarsýningu og markaði. Viðburðurinn hét Blue Moon og var styrktur af Akureyrarbæ sem hluti af Listasumri. Núna erum við að vinna að nýrri tónlist og í nýjum málverkum og munum vera hér á Íslandi fram í september. Bæði ég og Esha bjóðum upp á persónulega markþjálfun þar sem við hjálpum fólki að skapa draumalífið sitt. Markþjálfunin er tileinkuð þeim sem eru tilbúnir að raungera drauma sýna og lifa í fullri heilsu.“
Næsti viðburður er í Deiglunni á Akureyri miðvikudaginn 22. júní klukkan 19:30 í samstarfi við Rósu Maríu. Þar verða þau Stefán Elí og Esha með markað og boðið verður upp á tónlist og kakó.
„Okkur líður mjög vel að vera hér á Akureyri og hlökkum til þess að njóta þess sem eftir er af sumrinu á Íslandi,“ segir Stefán Elí að lokum.

Hér má hlusta á plötuna Vibrations of Love sem Stefán Elí gaf nýlega út og samanstendur af slökunartónlist sem hann tók upp yfir síðastliðið ár.
Hér má fylgjast með ævintýrum Stefáns Elís
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










