Stefán Boulter opnar sýningu í Hofi á laugardaginn 

Myndlistarmaðurinn Stefán Boulter opnar sýninguna sína Eilífð í Augnabliki í Menningarhúsinu Hofi laugardaginn 3. febrúar kl. 16.

Stefán hefur kosið að kalla það sem hann gerir „ljóðrænt raunsæi“. Hann býr til táknmyndir sem eru frásagnarlegs eðlis, bæði persónulegar og byggðar á þekktum og fornum grunni. Hugleiðingar um náttúruna, tilvist okkar í henni og dýrkun hennar skipar þar stóran sess, með áherslu á dýrin og viðveru hluta og áru þeirra. Málverkin endurspegla andleg og fagurfræðileg gildi listsköpunar sem eru sígild og tímalaus. Stefán hefur verið talsmaður nýrra og breyttra heimspekilegra viðhorfa í listsköpun og bera verk hans þess merki.

Stefán hefur sýnt verk sín víða í söfnum og galleríum bæði hér heima og erlendis.

Málverkin á sýningunni eru öll unnin með olíu á striga.

Öll eru velkomin á opnunina.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!