Starfsmannafélag ÍME styrkir KAON

Í tilkynningu frá Eyjafjarðarsveit kemur fram að Starfsmannafélag ÍME (Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar) stóð fyrir fjársöfnun í bleikum október til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis. Alls söfnuðust 60 þúsund krónur með liðsinni gesta íþróttamiðstöðvarinnar sem fengu frítt kaffi en gátu á móti styrkt söfnunina með frjálsum framlögum. Starfsfólk klæddist m.a. bleikum vinnubolum í október til að minna á verkefnið og fjársöfnunina.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!