MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Starfsemi endurhæfingarþjónustu SAk færist frá Kristnesi um óákveðinn tíma

Eftir Ingólfur Stefánsson·
kristnes
kaffid.is

Ákveðið hefur verið að færa starfsemi endurhæfingarþjónustu SAk úr húsnæði sínu á Kristnesi um óákveðinn tíma. Ákvörðunin er tekin í kjölfar ítarlegrar skoðunar og greiningar á húsnæðinu sem leiddi í ljós að það er, í núverandi ástandi, óhæft til notkunar fyrir heilbrigðisþjónustu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Sjúkrahússins á Akureyri, SAk.

Unnið er að því að koma dag- og göngudeildarhluta þjónustunnar fyrir í nýju húsnæði að á Akureyri, sem er 815 fermetrar að stærð. Stefnt er að því að starfsemi hefjist þar í september og að þar verði hægt að veita allt að 20 skjólstæðingum þjónustu á dagdeild og göngudeild. Þá munu sex legurými fyrir endurhæfingarsjúklinga verða tekin í notkun á skurðlækningadeild SAk frá og með 4. ágúst.

„Breytingarnar munu óhjákvæmilega hafa áhrif á skipulag endurhæfingarþjónustu, en einnig á aðra starfsemi sjúkrahússins. Til að skapa rými innan veggja SAk fyrir sjúklinga og klínískt starfsfólk er m.a. verið að skoða tímabundnar húsnæðislausnir á lóð SAk fyrir hluta starfsfólks sem ekki starfar beint með sjúklingum,“ segir í tilkynningu SAk.

„Okkur er mikið í mun að standa vörð um endurhæfingarþjónustu sem og aðra þjónustu SAk, þrátt fyrir þessar krefjandi aðstæður í húsnæðismálum, enda er þjónustan sjúklingum og aðstandendum þeirra afar mikilvæg. Fram undan er umfangsmikið verkefni sem kallar á samvinnu, lausnamiðaða hugsun og sveigjanleika. Innan SAk er til staðar bæði mikil sérfræðiþekking og vilji til að tryggja góða þjónustu. Ég er sannfærður um að með sameiginlegu átaki munum við takast á við þessar áskoranir, samhliða því að leggja grunn að öflugri endurhæfingarþjónustu til framtíðar,“ segir Guðjón Hauksson, forstjóri SAk.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026