MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Starf í nýjum leikskóla hefst í næstu viku

Eftir Ingólfur Stefánsson·
baejarstjori-med-starfsfolki-hagasteins-fyrr-i-dag-2000×1500-1
Bæjarstjórinn á Akureyri, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, heimsótti í morgun starfsfólk nýja leikskólans· kaffid.is

Í næstu viku hefst aðlögun hjá 20 börnum í þremur deildum við nýja leikskólann Hagastein við Naustagötu í Hagahverfi á Akureyri. Í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar í dag segir að þar séu nú allir í óða önn að undirbúa opnun skólans.

„Framkvæmdir við húsið sjálft og lóðafrágangur hafa að mestu gengið samkvæmt áætlun og er nú unnið hörðum höndum að því að reka smiðshöggið á það sem þarf að klára áður en skólastarfið hefst,“ segir í tilkynningu bæjarins.

Fleiri börn koma til leiks og starfa á næstu vikum. Um miðjan september verður fjórða deildin tekin í notkun ásamt sal, annarri forstofu og eldhúsi leikskólans. Fram að þeim tíma verður matur fyrir börnin eldaður annars staðar og fluttur í leikskólann, þannig að þjónustan við börnin verður óbreytt.

Sá hluti útisvæðisins sem tekinn verður í notkun við opnun skólans verður tilbúinn að öllu leyti, afgirtur og öruggur. Þótt einhverjar framkvæmdir haldi áfram á öðrum svæðum í kring verður lögð rík áhersla á að þær hafi sem minnst áhrif á daglegt starf leikskólans.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026