Stafræn sýning haustannar í MTRMynd/MTR - GK

Stafræn sýning haustannar í MTR

Sýningin opnaði í gær, laugardag, og var vel sótt samkvæmt MTR. Á henni má sjá fjölbreytt verk; ljósmyndir og málverk nemanda af listabraut sem og skapandi verkefni nemanda af öðrum brautum. Einkunnarorð skólans: Frumkvæði – Sköpun – Áræði hafa verið í hávegum höfð við vinnu þessara verkefna. Valin verkefni úr ensku, íslensku og erlendum samstarfsverkefnum eru einnig til sýnis á heimasíðu skólans. Ungum sýningargestum var boðið að fást við jólaföndur og veitingar voru í boði fyrir alla aldurshópa.

Sýningin verður opin til 19. desember á starfstíma skólans og er fólk hvatt til að líta inn og skoða afrakstur vinnu nemenda á haustönninni. Einnig er hægt að skoða stafræna sýningu hér.

Sambíó

UMMÆLI