Stækkun bílastæðis við Sunnuhlíð
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á bæjarstjórnarfundi í vikunni tillögu skipulagsráðs um að breyting á deiliskipulagi við Sunnuhlíð sem felur í sér stækkun bílastæðis austan við Sunnuhlíð 12, verði auglýst.
Tillagan felur í sér fjölgun bílastæða austan við Sunnuhlíð 12 til að koma til móts við aukna þörf vegna uppbyggingar þjónustu á lóðinni, sérstaklega í tengslum við starfsemi HSN. Gert er ráð fyrir að bæta við 27 nýjum bílastæðum.
Útfæra þarf tillöguna að breytingu í samráði við skipulagssvið og umhverfis- og mannvirkjasvið bæjarins. Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa jafnframt að skoða í samvinnu við umhverfis- og mannvirkjasvið enn frekari stækkun á bílastæði norðaustan við húsið og færslu á leikvelli.

Tengdar greinar
Uppfært: 17. september 2026










