beint flug til Færeyja

Staðan eftir víðtækar rafmagnstruflanir í gær

Staðan eftir víðtækar rafmagnstruflanir í gær

Klukkan 14:05 í gær 2. október komst rafmagn aftur á eftir stóra truflun sem varð í flutningskerfi Landsnets. Þrátt fyrir að náðst hafi að byggja upp kerfið og koma spennu aftur á voru dæmi um að einhverjir viðskiptavinir RARIK væru enn rafmagnslausir fram á kvöld.

Þetta átti við í Mývatnssveit en þar varð mikil truflun á spennu sem í einhverjum tilfellum skemmdi rafmagnstæki og rafmagnstöflur. RARIK sendi í gær út tilkynningu til viðskiptavina í Mývatnssveit þar sem óskað var eftir að þau sem enn væru rafmagnslaus hefðu samband við bilanavakt RARIK. Einnig var haft samband við verktaka á svæðinu sem fóru heim til þeirra sem höfðu samband og voru að aðstoða fólk langt fram eftir kvöldi.

Þeim sem orðið hafa fyrir tjóni vegna atburða gærdagsins er bent á að hafa samband við sína dreifiveitu.

Viðskiptavinir RARIK geta tilkynnt um tjón á vef RARIK: www.rarik.is/tjon. Eins og gefur að skilja er mikið álag á þjónustuver RARIK við að taka á móti og vinna úr tjónatilkynningum viðskiptavina. Unnið er að því að viðskiptavinir fái úrlausn sinna mála eins fljótt og auðið er. Umfang tjóns er enn óljóst og við viljum gefa viðskiptavinum okkar tíma til að meta það hjá sér áður en þau senda tilkynningu til okkar.

Ýtarupplýsingar og skýringar:

  • Útleysing á rafmagni frá aðveitustöð hefur í för með sér rafmagnsleysi á því svæði sem tiltekin aðveitustöð þjónar. Útleysing er m.a. vörn gegn miklum spennubreytingum eða höggi líkt og gerðist í kerfi Landsnets í gær. Flestar aðveitustöðvar sem urðu fyrir miklu höggi úr flutningskerfi Landsnets „leystu út“ sem þýðir að rafmagnslaust varð á þeim svæðum. 
  • Í Mývatnssveit varð ekki útleysing sem olli því að höggið úr kerfinu barst alla leið til viðskiptavina og er það ástæða þess að tjón urðu á því svæði. RARIK leitar að orsök þess að ekki leysti út. Grænt svæði á korti sýnir það svæði sem varð fyrir spennutruflun í Mývatnssveit.
  • Meðfylgjandi kort sýnir hvar varð rafmagnslaust á dreifisvæði RARIK og einnig áhrifasvæði spennubreytinga í Mývatnssveit. Akureyri er sýnd blá á kortinu þar sem hún er ekki innan dreifisvæðis RARIK en þar varð ekki rafmagnslaust samkvæmt þeim upplýsingum sem RARIK hefur fengið. Skv. upplýsingum frá Orkubúi Vestfjarða fór rafmagn af í örstutta stund á hluta Vestfjarða. Þetta er ekki merkt á korti þar sem ekki er um dreifisvæði RARIK að ræða. Austfirðir og fleiri svæði á Austurlandi sem eru innan dreifisvæðis RARIK og urðu ekki fyrir rafmagnsleysi en gætu hafa upplifað einhverjar truflanir eða flökt. (Hér má sjá dreifikerfi RARIK: RARIK – Dreifikerfi-kortasjá). Að lokum varð útleysing í aðveitustöð skammt frá Höfn sem olli straumleysi í Suðursveit.
  • Mikill fjöldi tilkynninga hefur borist til RARIK frá fólki sem ekki er á dreifisvæði RARIK, t.d. frá Akureyri. Íbúum Akureyrar er bent á að hafa samband við Norðurorku sem sér um dreifingu rafmagns á Akureyri.
Sambíó

UMMÆLI

Sambíó