MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Sparifataganga á Súlur í tilefni 90 ára afmælis FFA

Eftir Ingólfur Stefánsson·
683618370_1399436475322966_1234828377470815438_n
kaffid.is

Næstkomandi fimmtudag, 6. ágúst, mun Ferðafélag Akureyrar efna til kvöldgöngu á Súlur í sparifötunum. Stefnt er að brottför klukkan 19 frá Súlubílastæðinu. Þau sem vilja geta mætt við skrifstofu FFA, Strandgötu 23 kl. 18:30 þar sem hægt er að safnast saman í bíla.

Gunnar Már Gunnarsson verður fararstjóri í göngunni. Gengið er eftir merktri og nokkuð auðveldri gönguleið á fjallið. Göngubúnaður miðast við færi og aðstæður en þátttakendur er beðnir um að koma í svolitlum sparifatnaði eins og hægt verður miðað við aðstæður. Einnig eru þeir beðnir um að leggja eitthvað smávegis til í Pálínuboð þegar upp er komið en lagður verður út dúkur fyrir veitingar.

Vegalengd (báðar leiðir): 11–12 km. Gönguhækkun: 880 m. Sama leið farin til baka. Þátttaka er ókeypis

Skráning í ferðina fer fram á vef Ferðafélags Akureyrar hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026