NTC

Spari Dynheimaball um verslunarmannahelgina

Hefð er fyrir því um verslunarmannahelgina á Akureyri að  fram fari svokallað Dynheimaball og er um að ræða dansleik fyrir fullorðið fólk (allir eldri en 30 ára). Er þá verið að vísa í félagsmiðstöðina Dynheima þar sem ungt fólk dansaði á áttunda og níunda áratugnum og fá margir fiðring í tærnar við tilhugsunina eina.

Í ár verður dansleikurinn settur í sparibúning og haldinn hér í Hofi nánar tiltekið í Hömrum og Hamragili. Laugardaginn 5. ágúst kl 22.00 hefst ballið og því ráð að pússa dansskóna og þurrka rykið af spariklæðnaðnum. Það eru plötusnúðarnir N3 og veitingastaðurinn 1862 Nordic Bistro sem standa fyrir Spari Dynheimaballinu.

Miðasala er hafin á mak.is. Farið verður fram á snyrtilegan klæðnað og aldurstakmark verður 30 ára.

 

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó