Knattspyrnudeild Þórs hefur samið við Nacho Gil, sem er 25 ára gamall spænskur miðjumaður og kemur frá Cd Mostoles URJC.
Þjálfarateymi Þórs skoðaði leikmanninn þegar liðið var í æfingaferð á Spáni fyrir skemmstu og leist afar vel á kappann. Nú hafa samningar tekist og mun hann leika með Þór í Inkasso deildinni í sumar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
UMMÆLI