Sólstöðuhátíðin í Grímsey hefst í dag

Í dag, föstudaginn 23. júní, hefst Sólstöðuhátíð í Grímsey en þessi árlega bæjarhátíð er haldin í tilefni af sumarsólstöðum. Grímseyingar bjóða gestum og gangandi að taka þátt í alls kyns uppákomum og afþreyingu og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

Í ár verður til að mynda boðið upp á ratleik, sjávarréttakvöld í félagsheimilinu Múla, siglingu í kringum eyjuna og magnaða göngu yfir heimskautsbaug á sumarsólstöðum með söng og gítarleik.

Gestum er bent á Facebook síðu hátíðarinnar sem er að finna HÉR

Dagskrá hátíðarinnar 2023
*Birt með fyrirvara um breytingar

*PDF útgáfa af dagskrá er að finna HÉR

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!