Við sýndum á dögunum brot úr viðtali sem Maggi Texas tók við starfsmann á Bautanum þar sem fyrrum forsetaframbjóðandinn var helst til óviðeigandi. Það má sjá hér.
Grínistinn Sóli Hólm er staddur á Akureyri en hann er að sýna á Græna Hattinum um helgina sýninguna, Leppalúðar og létt jólatónlist ásamt Hvanndalsbræðrum og fleirum. Hann setti ansi skemmtilegt myndband á Twitter aðgang sinn í dag. Þar gerir hann grín að umræddu viðtali á ansi skemmtilegan hátt og fær viðmælandann úr viðtali Magga til liðs við sig.
Sjá einnig: Þú er svolítið indverjalegur
Myndbandið sem Sóli deildi má sjá hér að neðan.
Halló, Akureyri! Halló, Texas! Halló Indland! Halló, Bàrðardalur! pic.twitter.com/wUYFs9Zwmn
— Sóli Hólm (@SoliHolm) December 3, 2016
UMMÆLI