Sólför gefur út ábreiðu af Led Zeppelin

Akureyrska hljómsveitin Sólför gaf í dag út ábreiðu af laginu Immigrant Song sem Led Zeppelin gerðu á sínum tíma. Lagið kom út fyrir 56 árum og kom út eftir heimsókn hljómsveitarinnar til Íslands árið 1970.
„Nú, 56 árum síðar, lokum við hringnum og færum lagið aftur heim — íslensk rokksveit innblásin af Led Zeppelin að spila lag eftir þá, innblásið af Íslandi,“ segja meðlimir Sólför.
Sólför hefur spilað Immigrant Song á tónleikum regluleg við mikla lukku. Því ákváðu þeir að slá til og gefa út sína útgáfu af laginu. Lagið er komið á allar tónlistarveitur.
Hljómsveitin vill taka það sérstaklega fram, í ljósi tíðaranda, að notkun á íslenska fánanum í myndinni sem fylgir laginu er ekki á nokkurn hátt pólitísk yfirlýsing.
Tengdar greinar
Uppfært: 18. september 2026










