Sóldís Júlía vann gull á SCA móti í Andorra

Sóldís Júlía Sigurpálsdóttir vann gull ásamt liðsfélaga hennar, Helenu Kristjánsdóttur, á SCA móti í strandblaki í flokki U18 sem fram fór í Andorra. Þetta kemur fram á vef KA.
Á dögunum unnu bræðurnir Sölvi og Svanur Hafþórssynir gull í drengjaflokki mótsins en sigurinn tryggir þeim Sóldísi, Sölva og Svan sæti á lokamóti EM á næsta ári en þar verða þau komin upp í næsta aldursflokk, U20.
Þær Sóldís og Helena spiluðu frábærlega á mótinu en þær unnu alla leikina sína í riðlakeppninni mjög sannfærandi en þar lögðu þær lið frá Andorra, Írlandi og Norður-Írlandi og komu því á flugi inn í undanúrslitin. Þar mættu þær liði frá Skotlandi og enn sýndu Sóldís og Helena frábæra spilamennsku því þær unnu enn einn 2-0 sigurinn, nú 21-9 og 21-13.
Í úrslitunum mættu stelpurnar liði frá Færeyjum og enn sýndu stelpurnar hve öflugar þær eru því þegar leið á báðar hrinurnar stungu þær hreinlega af og unnust báðar hrinur 21-12 og leikurinn því samanlagt 2-0. Gull í höfn og þar með sæti á lokakeppni EM.
Sveinbjörg Lilja Ingólfsdóttir (til hægri) tók einnig þátt á mótinu og átti KA því tvo fulltrúa á mótinu en Sveinbjörg lék með Kötlu Björg Beck. Stelpurnar áttu góða leiki í riðlakeppninni en þurftu á endanum að sætta sig við að keppa um sæti 7.-9. en þar unnu þær öflugan 2-0 sigur á liði frá Norður-Írlandi en þurftu að sætta sig við tap gegn heimastúlkum frá Andorra og niðurstaðan því 8. sætið.
Spennandi er að fylgjast áfram með uppgangi blakdeildar KA í strandblakinu þar sem liðið á þrjá fulltrúa á EM næsta sumar.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










