MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Söfnuðu 2511 undirskriftum til bjargar endurhæfingu á Kristnesi

Eftir Ingólfur Stefánsson·
IMG_3054
kaffid.is

Mánudaginn 7. sept klukkan 8:55 munu fulltrúar hóps sem vill að endurhæfingin á Kristnesi í Eyjafirði verði þar áfram og ekki flutt til Akureyrar, afhenda Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra, 2511 undirskriftir sem söfnuðust á Ísland.is í sumar.

Mygla greindist í vor á Kristnesspítala þar sem endurhæfing SAK hefur farið fram síðustu áratugi með góðum árangri.

„Búið að koma þar upp sérhæfðri endurhæfingarsundlaug svo ekki sé minnst á fallega gróna umhverfið sem hefur sannarlega heilunarmátt í sjálfu sér. Nú stefnir í það að endurhæfingin verði flutt til Akureyrar og enginn veit hvað verður um húsið sem verður 100 ára á næsta ári,“ segir María Pálsdóttir leikkona og Hælisstýra.

„Við erum ansi mörg sem erum ósátt við þessa málavöxtu og viljum gera allt sem í okkar valdi stendur til að sannfæra stjórnvöld um að þarna eigi endurhæfingin heima. Í hópnum eru læknar, sjúkraþjálfara og fleira starfsfólk Kristnesspítala ásamt öðrum velunnurum Kristness.“

Vel heppnaðir samstöðutónleikar voru haldnir á Kristnesi síðasta laugardag þar sem ræður voru fluttar inn á milli tónlistaratriða. Búið er að safna 2511 undirskriftum til bjargar endurhæfingunni á Kristnesi sem verða afhentar heilbrigðisráðherra næsta mánudag við heilbrigðisráðuneytið Skúlagötu 4..

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026