
Snorri Óskarsson fyrrum grunnskólakennari Akureyrarbæjar fær 7 milljónir króna í bætur frá bænum fyrir uppsögn og launa sem hann varð af. Snorra var sagt upp störfum hjá Akureyrarbæ, vegna ummæla um samkynhneigð sem hann lét falla á bloggsíðu sinni. Sú uppsögn var dæmd ólögmæt í Hæstarétti í febrúar árið 2016.
Snorri fór fram á 12 milljónir króna í bótakröfu sem hann sendi Akureyrarbæ á síðasta ári. Héraðsdómur Norðurlands eystra úrskurðaði í gær að Akureyrarbær þyrfti að greiða Snorra 6,5 milljónir króna í bætur ásamt 500 þúsund krónum í miskabætur.
Snorri segir á Facebook síðu sinni að honum finnist hann hafa sett fram rökstuddar og hóflegar kröfur en dómskerfið sé ekki á sama máli. Hann huggar sig við það að hann hafi að minnsta kosti fengið tvöfalt hærri bætur en Akureyrarbær var tilbúinn að greiða. Færslu Snorra má sjá hér að neðan.










