Mynd: Akureyri.is

Snjómokstur í fullum gangi á Akureyri

Unnið er að snjómokstri á stofn- og tengibrautum ásamt íbúðargötum á Akureyri og er stefnt að því að ryðja allar götur fyrir páska. Þetta kemur fram á vef bæjarins í dag þar sem segir að takist ekki að ryðja allar götur fyrir páska verði að sjálfsögðu haldið áfram þar til verkinu er lokið.

„Snjóþyngsli í bænum eru nú umtalsverð og víða eru húsagötur jafnvel illfærar ökutækjum. Athygli er vakin á því að mikil hálka getur myndast á gangstéttum og göngustígum eftir snjóhreinsun þegar hitastig er í kringum frostmark. Þá myndast gjarnan örþunn ísfilma sem getur verið varasöm, þótt hún bráðni fljótt ef hlýnar. Gangandi vegfarendur eru því beðnir um að sýna sérstaka aðgát,“ segir í tilkynningu bæjarins.

Spáð er góðu veðri um helgina og ekki gert ráð fyrir mikilli ofankomu. Snjórinn sem fallið hefur síðustu daga er hins vegar blautur og þungur, sem gerir hreinsun gatna og stíga tímafrekari en oft áður.

Smelltu hér til að skoða upplýsingar um vetrarþjónustu Akureyrarbæjar og vinnureglur sem gilda um snjómokstur.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!