MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Snjómokstur í fullum gangi

Eftir Ingólfur Stefánsson·
snjor akureyri
kaffid.is

Töluvert hefur snjóað í bænum um helgina og þennan mánudagsmorguninn er víða illfært um íbúðagötur og stíga. Unnið er að snjómokstri og er mikill fjöldi tækja í notkun á vegum sveitarfélagsins og verktaka. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Stígamokstur er í fullum gangi samkvæmt forgangskorti og þegar búið verður að moka götur í forgangi verður farið í að moka íbúðagötur.

NTC

Smelltu hér til að skoða upplýsingar um vetrarþjónustu Akureyrarbæjar og vinnureglur sem gilda um snjómokstur.

„Fólk sem vinnur að snjómokstri kappkostar að hreinsun stíga og gatna verði lokið sem fyrst. Nú gildir að sýna þolinmæði og tillitssemi,“ segir í tilkynningu bæjarins.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026