Snjóflóðahætta á Siglufjarðarvegi
Eftir Ritstjórn·

Siglufjarðarvegur varð lokaður í dag vegna snjóflóðahættu. Sveinn Brynjólfsson, snjóflóðafræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að lítil flóð hafi fallið á Siglufjarðarveginum svo ákveðið var að hafa varann á.
Einnig hefur verið lýst yfir óvissustigi B á Ólafsfjarðarvegi en honum hefur þó ekki verið lokað enn. Á vef Vegagerðarinnar er hægt að skoða færðina og breytingar nánar.
Tengdar greinar
Uppfært: 22. apríl 2026










