MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Sniðgangan haldin í þriðja sinn

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
6aa2a8e4ba674
kaffid.is

Sniðgangan 2026 verður haldin þann 12. september klukkan 14:00. Einkunnarorð göngunnar í ár eru: „Sniðgöngum öll“ . Þetta er í þriðja sinn sem Sniðgangan fer fram bæði á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Gangan hefst kl. 14 við Háskólann á Akureyri og er gengið að Ráðhústorgi þar sem verður dagskrá við göngulok:

*Ræða frá fulltrúa Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.
*Svavar Knútur flytur tónlist
*Kveðjur frá Gaza – Oddný Björg Rafnsdóttir les
*Hamza Abukamleh leiðir okkur í Dabke hópdans
Félagið Ísland-Palestína og Vonarbrú verða með söluborð.

„Núna er heilt ár síðan íslensk stjórnvöld tilkynntu afar máttlausar aðgerðir gegn Ísrael. En ástandið á Gaza er þyngra en tárum taki og staðan á Vesturbakkanum versnar dag frá degi. Til að sýna stjórnvöldum að þau þurfa að ganga miklu lengra og til að efla vitundarvakningu um sniðgöngu þá komum við saman í samstöðu með Palestínu í Sniðgöngunni. Gengið verður gengin á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Hvetjum þau sem hafa tök á að mæta með fána, klúta og skilti,“ segir í tilkynningu um gönguna.

Viðburðurinn er samstarf sniðgönguhreyfingarinnar BDS Ísland / BDS Iceland*, Félagsins Ísland-Palestína, góðgerðarfélagsins Vonarbrúar, Dýrsins – félags um réttinn til að mótmæla, Háskólafólks fyrir Palestínu og Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.
*BDS Ísland / BDS Iceland – BDS stendur fyrir Boycott, Divestment and Sanctions og er íslenskur angi alþjóðlegu BDS-hreyfingarinnar Boycott, Divestment and Sanctions (BDS) Movement: www.BDSmovement.net

Tengdar greinar

Uppfært: 10. september 2026