Píeta

Smáforritið „Flæði“ tilbúið til notkunar

Smáforritið „Flæði“ tilbúið til notkunar

Smáforritið Flæði er nú tilbúið til notkunar. Með því er fólki auðveldað að komast leiðar sinnar með því að tengja saman í eitt flæði ýmsa umhverfisvæna ferðamáta hvort sem farið er með strætó, rafskútum frá Hopp, hjólandi og/eða gangandi. Þetta tilkynnti Akureyrarbær í dag.

Um er að ræða samevrópskt nýsköpunarverkefni á vegum EIT Urban Mobility sem Akureyrarbær og Vistorka hafa unnið að með franska sprotafyrirtækinu Instant System. Markmiðið verkefnisins er einmitt að para saman sveitarfélög og sprotafyrirtæki til að finna nýjar lausnir sem styðja við breyttar ferðavenjur.

Smáforritið verður aðgengilegt í sumar og í sumarlok verður tekin ákvörðun um áframhaldandi samstarf.

Verði fólk vart við galla í forritinu er það beðið að senda Ísak Má Jóhannessyni, verkefnastjóra úrgangs- og loftlagsmála, ábendingar á netfangið isakj@akureyri.is.

Flæði appið er hægt að finna á appsíðum stýrikerfanna fyrir Android og Apple.

Sambíó

UMMÆLI