Skráning á Pollamót lokar í dag
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Skráningu á Pollamót Þórs og Samskipa lýkur í dag, 30. júní, klukkan 18:00. Það verður mikið um dýrðir á svæðinu alveg frá því á fimmtudag og þar til mótinu lýkur með stórdansleik í Boganum á laugardagskvöld. Allar frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu mótsins.
Tæplega 750 keppendur eru nú þegar skráðir til leiks en lokað verður fyrir skráningu á mótið í kvöld. Skráning fer fram á heimasíðu mótsins, pollamot.is.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










