MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Skotvopnin reyndust vera eftirlíkingar

Eftir Ingólfur Stefánsson·
534808562_1062374789315565_3896044346093185646_n
kaffid.is

Meint skotvopn sem fundust í lögregluaðgerð á Akureyri í gær þegar fimm voru handteknir reyndust vera eftirlíkingar. Aðilarnir sem voru handteknir voru látnir lausir að skýrslutöku lokinni.

Börkur Árnason, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, segir í samtali við fréttastofu RÚV að vopnin hafi verið nákvæmar eftirlíkingar en ekki virk skotvopn.

Í frétt á vef Vísis segir að hin meintu skotvopn hafi verið leikfangabyssur sem líkja eftir þýsku hríðskotabyssunni MP5. Þær séu með rauðmálað hlaup sem merkir að skotvopn sé ekki alvöru. Þetta er haft eftir einstaklingi sem gætir hagsmuna eins drengjanna sem voru handteknir.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026