Akureyrarflugvöllur

Skora á ríkið vegna flugvallarins

Á vef Akureyrarbæjar kemur fram að á fundi bæjarstjórnar í gær hafi verið rætt um mikilvægi uppbyggingar Akureyrarflugvallar.

Bókun bæjarstjórnar er svohljóðandi: Bæjarstjórn Akureyrarbæjar skorar á ríkisstjórnina að halda áfram uppbyggingu og fjárfestingu í nauðsynlegum innviðum þannig að Akureyrarflugvöllur geti sinnt enn betur hlutverki sínu sem alþjóðaflugvöllur og sem varaflugvöllur fyrir Keflavík. Bæjarstjórn leggur áherslu á að hraða vinnu við hönnun aðflugsferla, tryggja fullnægjandi eldsneytisbirgðir og koma upp aðflugsljósum úr norðri. Atburðir síðustu viku, þegar átta farþegaþotur Icelandair lentu í Eyjafirði, undirstrikuðu með skýrum hætti mikilvægi flugvallarins fyrir flugöryggi á Íslandi.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!