Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Menning

Skollamjólk: Spánný tónleikaröð á Akureyri

Eftir Ingólfur Stefánsson·
strakurinnfakurinn
kaffid.is

Tónleikaröðin Skollamjólk hóf göngu sína byrjun september með einstaklega vel heppnuðum tónleikum Stráksins fáksins. Skollamjólk er nýjasta útspil listasamlagsins MBS sem einnig heldur úti sjálfstæðri plötuútgáfu á Akureyri auk þess að hafa staðið fyrir menningarhátíðinni Mannfólkið breytist í slím frá árinu 2018.

Eitt helsta einkenni Skollamjólkur eru liifandi tónlistarmyndbönd sem gefin verða út á YouTube rás MBS.

Strákurinn fákurinn er akureyrsk hljómsveit sem nýlega gaf út sína fyrstu plötu „Drengurinn Fengurinn“. Hljómsveitin hefur verið iðin við tónleikahald undanfarið og vakið athygli fyrir kraftmikla sviðsframkomu.
Upptökur frá tónleikum Stráksins fáksins á Skollamjólk má finna hér:

Strákurinn Fákurinn – Ostar, klám og ofbeldi (Live at Skollamjólk)

Strákurinn Fákurinn – Sofa (Live at Skollamjólk)

Strákurinn Fákurinn – Flottur bíll, flottur strákur (Live at Skollamjólk)

Skollamjólk er haldin mánaðarlega í Slímstöðinni, höfuðstöðvum MBS samsteypunnar. Ein hljómsveit eða atriði kemur fram í hvert sinn þar sem markmið tónleikaraðarinnar er tvíþætt. Að auka bæði fjölda og fjölbreytni tónleika á Akureyri, ásamt því að sérstaða Skollamjólkur felst helst í ríkri áherslu á að fanga tónleikana á hljóð og mynd, vinna úr þeim með sem faglegustum hætti og birta á netinu.

Fyrir liggur dagskrá næstu mánaða en næst koma fram Biggi Maus og MeMMM 17. Október: https://fb.me/e/7QkTy0s5D

Í nóvember kemur svartmálmssveitin Mannveira norður og verða þetta líklega verða fyrstu svartmálmstónleikar á Akureyri í um áratug: https://fb.me/e/6QdUJLUZ4

Ekkert kostar inn á viðburði Skollamjólkur en tekið er við frjálsum framlögum gesta.

Upplýsingar um MBS og Skollamjólk má finna á miðlum samsteypunnar:

mbsskifur.is

instagram.com/mbsskifur

facebook.com/mbsskifur

Tengdar greinar

Uppfært: 1. október 2026