Ljósmynd: Skíðafélag Akureyrar

Skíðafélag Akureyrar kynnir skíðaíþróttir fyrir leikskólabörnum

Skíðafélag Akureyrar hefur hleypt af stokkunum samfélagsverkefninu „Litlu skíðavinirnir“ í samstarfi við leikskólann Hólmasól. Markmið verkefnisins er að kynna skíðaíþróttir fyrir börnum á leikskólaaldri í gegnum leik og útivist. Í tilkynningu frá Skíðafélagi Akureyrar segir að um 30 börn taki þátt í verkefninu í vetur og fái þau leiðsögn í bæði svigi og gönguskíðum í sex skipti undir stjórn þjálfara frá félaginu.

Verkefnið er hugsað sem liður í að efla lýðheilsu og sjálfsmynd barna, auk þess að brúa bilið fyrir fjölskyldur sem ekki eiga eigin búnað en Skíðafélagið leggur til allar græjur fyrir þátttakendur. Fram kemur á skidi.is að þetta sé tilraunaverkefni sem vonir standa til að þróa áfram í samstarfi við fleiri leikskóla og Akureyrarbæ í framtíðinni.

Verkefnið var fjármagnað með stuðningi fyrirtækja á borð við Fjallanöf, Útisport, SBA Norðurleiðir, KEA og Hlíðarfjall, auk þess sem sjálfboðaliðar og einstaklingar lögðu sitt af mörkum við kaup á búnaði og leiðbeiningar í fjallinu

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!