Skemmtikvöld í stað konu- og karlakvölda

Í kvöld, fimmtudaginn 14. september, kl. 20-23, stendur nemendafélagið Þórduna fyrir skemmtikvöldi í Gryfjunni í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Skemmtikvöldið kemur í stað konu- og karlakvölda sem boðið hefur verið upp á undanfarna vetur og samanstendur dagskráin að nokkru leyti af því sem hefur verið boðið upp á á þeim kvöldum. Bílar, vélsleðar og hjól verða á staðnum, sölukynningar verða á fötum, í boði verður pizza og gos og farið verður í leiki.

Grínistarnir Björn Bragi Arnarsson og Saga Garðarsdóttir munu stýra samkomunni.

Nóg er í gangi í skemmtanalífi Verkmenntaskólans en Pétur Guðjónsson sér um leiklistarnámskeið á þriðjudögum kl. 16:15-18:00  Námskeiðið er fyrir bæði byrjendur og lengra komna og er ætlað sem góður grunnur fyrir prufurnar fyrir leikrit vetrarins, Ávaxtakörfuna, sem verða þann 10.október nk.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!