Úrslitakeppnin í Hertz-deild kvenna í íshokkí hófst í gær í Skautahöllinni á Akureyri þegar Skautafélag Akureyrar tók á móti Fjölni. SA, fer afskaplega vel af stað í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn en liðið vann stórsigur í fyrsta leiknum um Íslandsmeistaratitilinn í gærkvöldi. Tvo sigra þarf til þess að tryggja Íslandsmeistaratitilinn.
SA konur unnu leikinn 13-1 og geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í Egilshöll í Grafarvogi á morgun, fimmtudag.
Sunna Björgvinsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir SA, Saga Sigurðardóttir og Hilma Bergsdóttir tvö mörk og þær María Eiríksdóttir, Kolbrún Garðarsdóttir, Berglind Leifsdóttir, Jónína Guðbjartsdóttir, Teresa Snorradóttir og Ragnhildur Kjartansdóttir skoruðu allar eitt mark.
UMMÆLI