Skátafélagið Klakkur hefur, vegna aukinnar umferðar og slæmrar umgengni, ákveðið að læsa skálanum Gamla. Skálinn, sem nefndur er í höfuðið á Tryggva Þorsteinssyni, er í eigu félagsins og hefur hingað til alltaf staðið ólæstur. Eftirfarandi segir í tilkynningu frá skátunum:
Gamli er útileguskáli ofan Löngukletta. Skálinn var byggður árið 1980 og er í eigu Skátafélagsins Klakks. Skálinn er fyrst og fremst ætlaður rekka- og róverskátum, sem eru skátar á aldrinum 16-25 ára. Skálinn hefur staðið ólæstur frá upphafi, bæði sem ákveðið öryggistæki, og eins svo gestir og gangandi geti skrifað í gestabók skálans.
Nú hinsvegar verða smá breytingar þar á, Skátafélagið hefur ákveðið að læsa húsinu, bæði vegna aukinnar umferðar gesta, sem gerir það að verkum að erfitt er að fara í útilegur, þegar gestir koma inn í skálann reglulega til að skrifa í gestabókina, jafnvel um miðja nótt, eins og ein skátasveit lenti í síðast þegar gist var í skálanum, að þau voru vakin tvisvar sömu nótt af fólki sem kom inn til að skrifa í gestabók.
Einnig hefur borið á slæmri umgengni í og við húsið, því miður er allt of algengt að rusl sé skilið eftir inni í húsinu, húsbúnaður skemmdur, og jafnvel að gist sé í skálanum án vitneskju eða samþykkis skátafélagsins.
Nú verður skálanum læst, en gestabók sett í kassa utan á húsinu, svo enn sé hægt að kvitta fyrir komu. Fyrirspurnir vegna skálans má senda á netfangið gamli@klakkur.is
UMMÆLI