Skapandi námskeið fyrir börn í Samlaginu

Haustönnin er að fara af stað í Samlaginu – sköpunarverkstæði, og farið er að fyllast í flesta hópa. Í haust verður boðið upp á fjögur 12 vikna námskeið fyrir börn og ungmenni á grunnskólaaldri: þrjú fjölbreytt listnámskeið og sérstakt leirnámskeið. Þema annarinnar er tilgangur lista.
Starf Samlagsins byggir á því að börn og ungmenni fái tækifæri til að kynnast myndlist og skapandi vinnu í gegnum fjölbreytt efni, aðferðir og verkefni. Áhersla er lögð á að kenna færni og vinnubrögð en jafnframt skapa svigrúm fyrir hugmyndir, tilraunir og sjálfstæða sköpun. Verkefnin taka mið af aldri og þroska hvers hóps og byggja þannig smá saman upp þekkingu, færni og öryggi í skapandi vinnu.
Í haust verða fjórir aldursskiptir hópar. Á mánudögum verður leirnámskeið fyrir 10–15 ára, á þriðjudögum listnámskeið fyrir 6–9 ára, á miðvikudögum listnámskeið fyrir 13–15 ára og á fimmtudögum listnámskeið fyrir 10–12 ára. Eldri hóparnir hittast í tvær klukkustundir í senn en yngsti hópurinn í eina og hálfa klukkustund.
Kennarar haustannar eru Elín Berglind Skúladóttir, Gillian Pokalo, Karólína Baldvinsdóttir, Ólafur Sveinsson og Sigrún Birna Sigtryggsdóttir. Kennarahópurinn býr yfir fjölbreyttri reynslu og þekkingu á sviði myndlistar og kennslu, sem endurspeglast í starfi Samlagsins.
Mikilvægur hluti starfsins er einnig umhverfið sem sköpunin fer fram í. Samlagið er staðsett innan um vinnustofur listamanna í Þúfu við Gránufélagsgötu 46 og þar er lögð áhersla á notalegt og skapandi andrúmsloft. Markmiðið er að börn og ungmenni hafi rými til að sökkva sér niður í verkefni, prófa sig áfram og skapa í félagsskap annarra.
Hver önn myndar ákveðna heild og lýkur með sýningu á verkum nemenda. Þar fá þátttakendur tækifæri til að sjá eigin verk sett fram í sýningarrými og deila afrakstri annarinnar með fjölskyldum, vinum og öðrum gestum. Sýningin er þannig ekki aðeins lokapunktur annarinnar heldur hluti af því ferli að skapa, vinna verk áfram og loks koma þeim á framfæri. Sýningar í lok haust- og vorannirnar hafa farið fram í Deiglunni og verður sá háttur á í haust og sýning í Deiglunni 5. desember kl. 13-17.
**Haust 2026**
Mánudagar kl. 16–18 – leirnámskeið 10–15 ára
Þriðjudagar kl. 16–17:30 – listnámskeið 6–9 ára
Miðvikudagar kl. 16–18 – listnámskeið 13–15 ára
Fimmtudagar kl. 16–18 – listnámskeið 10–12 ára
Nánari upplýsingar og skráning eru á www.samlagid.art
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










