Tríó Akureyrar í Listasafninu á Akureyri
Eftir María Hjelm·

Miðvikudaginn 16. júlí mun Tríó Akureyrar halda tónleika á Ketilkaffi, sem staðsett er í Listasafninu á Akureyri.
Á efnisskránni eru meðal annars lög um sjóðheita íslenska sveitarómantík, náttúru, framhjáhald, hesta, dans og sjómennsku – sannkallaðar perlur íslenskrar dægurlagatónlistar.
Tríó Akureyrar skipa þau Jón Þorsteinn Reynisson harmonikkuleikari, Valmar Vaeljaots, leikari og tónlistarmaður, og Erla Dóra Vogler söngkona.
Gestir geta notið matar og drykkja á meðan þeir hlýða á þessi íslensku – og íslenskuðu – dægurlög. Lög sem gerð voru ódauðleg af söngvurum á borð við Hauki Morthens, Villa Vill, Erlu Þorsteins og mörgum öðrum lifna á ný í skemmtilegri stemningu á Ketilkaffi.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










