Á vef MAk kemur fram að sjö verk eftir ung og upprennandi tónskáld, hafa verið valin til þátttöku í Upptaktinum á Akureyri. Upptakturinn er tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna og er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Hörpu og styrktur af SSNE.
Höfundarnir, sem í þetta sinn eru á aldrinum 10-12 ára og öll frá Akureyri, hafa þegar hafið vinnuna við það að gera hugmynd að lagi með tónlistarkonunni Gretu Salóme, sem sér auk þess um útsetningu verkanna sjö fyrir hljómsveit.
Þátttakendur Upptaktsins eru :
Freyja Rán Kristinsdóttir, 10 ára Glerárskóla, Guðný Lilja B. Ásgeirsdóttir, 10 ára úr Lundarskóla, Hákon Geir Snorrason. 12 ára úr Naustaskóla, Ólöf Birna Kristjánsdóttir, 11 ára úr Síðuskóla, Ólöf Braga Ívarsdóttir, 10 ára úr Giljaskóla, Sandra Ósk Ragnarsdóttir Lieske, 12 ára úr Lundarskóla og Þorvaldur Adam Ásgeirsson, 10 ára úr Lundarskóla.
Uppskeruhátíðin verður sunnudaginn 19. apríl kl 17 þegar tónskáldin og aðstandendur þeirra hlýða á atvinnuhljóðfæraleikara flytja verkin á tónleikum í Menningarhúsinu Hofi.
Hljómsveit Upptaktins skipa tónlistarfólkið:
Emil Þorri Emilsson – slagverk
Eydís S. Úlfarsdóttir – víóla
Eyþór Ingi Jónsson – flygill
Greta Salóme – fiðla og söngur
Kristján Edelstein – gítar
Ágúst Þór Brynjarsson – söngur










