Sjö nýútskrifaðir lögreglumenn hefja störf hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra
Eftir María Hjelm·

Í dag hófu sjö nýútskrifaðir lögreglumenn störf hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar.
„Það eru merkileg tímamót að hefja starfsferil sinn. Í dag fögnuðum við með sjö nýútskrifuðum lögreglumönnum sem eru komnir til starfa hjá embættinu. Þeir undirrituðu heitstafinn og fengu erindisbréf sín afhent. Virkilega flottur hópur sem við erum stolt af,“ segir í tilkynningunni.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










