Framsókn

Sjö nýir veitingastaðir á Glerártorg

Sjö nýir veitingastaðir á Glerártorg

Ný mathöll opnar á Glerártorgi síðar á árinu og búið er að ganga frá samningum við sjö veitingaaðila sem munu opna í verslunarmiðstöðinni. Enginn þeirra er með starfsemi á Akureyri í augnablikinu.

Fjallað er nánar um mathöllina og aðrar breytingar sem standa nú yfir á Glerártorgi í fréttamiðlinum Akureyri.net en þar fer Sturla Gunnar Eðvarðssonar, framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá fasteignafélaginu Eik yfir málin. Lesa má greinina í heild sinni HÉR. 

Efnt hefur verið til nafnasamkeppni þar sem leitað er að nafni á mathöllina. Áhugasamir eru hvattir til að taka þátt og leggja nafn í púkkið í gegnum Facebooksíðu Glerártorgs. Fimmtíu þúsund króna gjafabréf sem hægt er að nýta á Glerártorgi er í boði fyrir besta nafnið. Sjá nánar HÉR.

VG

UMMÆLI