Sjaldséður gestur í Eyjafirði

Sunnudaginn 12. júlí varð starfsfólk hvalaskoðunarfyrirtækisins Whale Watching Akureyri vart við óvenjulegan blástur í einum af ferðum þeirra á RIB-bátum inn Eyjafjörð.
„Blástur hvalsins vakti strax athygli, það benti allt til þess að þar væri á ferð búrhvalur, sem er stærsta tannhvalategundin,“ segir í Facebook-tilkynningu frá fyrirtækinu.
Við nánari skoðun kom í ljós að svo var, heljarstór búrhvalur hafði synt djúpt inn í Eyjafjörð.
Þetta er sjaldgæf sjón á þessu svæði, enda er Eyjafjörðurinn nokkuð grunnur miðað við náttúruleg heimkynni búrhvala, sem kafa oft niður á meira en 2000 metra dýpi í leit að æti.
Myndir af sporði búrhvalsins voru sendar í gagnagrunninn Happywhale til að kanna hvar hvalurinn hefur áður sést og hvaða leið hann fór á ferðalagi sínu til Íslandsstranda.

Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










